GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Vorið í Japan

Þessa dagana eru pastel bleikir belgir sakura (cherry blossom) trjánna að springa út um allt Japan. Þetta er stórviðburður á hverju ári hérna þar sem sakura laufin þykja sérstaklega falleg. Það eru spes sakura spár í veðurfréttatímanum til að spá fyrir hvar mest verður af sakuralaufum og hátíðir eru haldnar í görðum innan um sakura trén þar sem bæði er etið og drukkið í góðra vina hóp. Eitthvað lítið er af sakura trjám í mínu nánasta umhverfi en ég kíkji eitthvert til að skoða þau betur með myndavél í för.
Svo er orðið svo heitt úti núna að maður kemst varla upp með að vera í þunnum sumarjakka, best að vera bara á stuttermabol og í sandölum.

Við hættum við Roni Size eftir allt saman, nenntum hreinlega ekki að fara. Ekkert djamm þessa helgi. Hef þó fengið að heyra það frá eldri lesendahópi þessa bloggs að maður sé bara á stanslausu djammi og fylleríi hérna, en svo er bara alls ekki. Kalla mig duglegan ef ég kíki eitthvað út á þriggja vikna fresti. Ég skrifa bara svo oft um það því mér dettur ekkert betra í hug að skrifa um yfirleitt.

Smá backlog, hjólið mitt bilaði á fyrsta skóladeginum, náði að slíta keðjuna á því svo það hefur ekki verið í nothæfu ástandi síðan. Ég ætti að drífa mig með það í viðgerð ef ég ætla að gera það áður en ég fer heim. Gengur ekki að hafa tussutryllirinn alveg í lamasessi.
Regnhlífinni minni verið stolið tvisvar síðan þessi önn byrjaði. Bölvaðir þjófar í þessum skóla! Það er orðin þumalputta regla núna að ef það hefur ekki rignt um morguninn en svo fer að rigna eftir hádegi þá máttu búast við því að það sé búið að stela regnhlífinni þinni úr regnhlífageymslunni í anddyrinu. Svo var hjólinu hans Dóra stolið í skólanum um daginn. Þessi þjóðsaga um að enginn steli neinu í Japan er bara eitt stórt samsæri hjá japönum til að geta rúið saklausa útlendinga inn að skinninu.