GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

þriðjudagur, maí 31, 2005

Lokaspretturinn

Já maður er bara kominn aftur til Tokyo, svei mér þá.
Ákvað á síðustu stundu í gær að senda aðra ferðatöskuna mína heim með pósti, það var frekar mikið stress. Þar sem ég mátti ekki senda þyngri hlut en 20 kg er ég með eina ca. 30 kg tösku í staðinn sem ég get varla loftað. Ekki gaman að draga þetta og drösla þessu upp og niður stiga á lestarstöðvum.
Í öllum hamagangium tókst mér að gleyma báðum jökkunum mínum, svo ég er algjörlega yfirhafnarlaus hér. Dóri er búinn að ná í þá og ætlar að senda með pósti til Íslands.

Fór til Kobe með fjölskyldunni hans Dóra á sunnudeginum sem var mjög gaman. Þeir eru frægir fyrir nautakjötið sitt þar sem ku vera ekki bara hið besta heldur líka það dýrasta í heiminum. Það allavega stóð fyllilega undir væntingum verð ég að segja.

Jæja, þetta verður síðasta færslan frá Japan. Verð líklega að vakna klukkan fimm í nótt til að vera á góðum tíma á flugvellinum, Ester er svo rosalega sæt að hún bauðst til að vakna þá og hjálpa mér upp á flugvöll, það munar um það.
Sjáumst heima á Íslandi!