GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

miðvikudagur, maí 04, 2005

Nara

Hér í Japan stendur yfir svokölluð Golden Week. Hún samanstendur af nokkrum frídögum sem eru grúppaðir saman sem mynda næstum heila viku í frí.

Fór í dag til Nara sem er þekkt fyrir gríðarlegt magn af hofum. Leit þar meðal annars augum stærstu brons búddastyttu í heimi sem er til sýnis innan í stærsta timburhúsi heimsins, reynið að slá það út! Styttan var gerð árið 752 og er 16 metra há og til að gefa ykkur betri hugmynd um hversu humongous hún er þá geta 5 menn staðið í einu í vinstri lófa styttunnar. Og meiri statistík, styttan trónar 30 metra í loftið með stallinum sem hún situr á, andlit hennar er 5,3 metrar á hæð og vegur styttan í heildina 250 tonn.
Ætla að setja upp einhverja myndasíðu fljótlega (4 real í þetta skiptið!) til að henda myndunum þangað inn, þangað til verða þessar þrjár að duga (smellið til að stækka).

Fór með Dóra að hitta japanskan vin hans og vinkonu þessa stráks á þriðjudaginn. Fórum á izakaya í grennd við húsið okkar og það varð frekar skrautlegt enda bjórinn hreinlega ekki á neitt þarna.

Svo virðist sem ég sé eitthvað að veikjast. Svo stórhættulegar þessar loftræstingar, maður hefur enga reynslu af að manage-a svona græjum í miklum hita. Vakna oft um miðja nótt og það er geðveikt heitt svo ég stekk og stilli loftræstingu á allra kaldasta blástur. Það er voða gott þangað til ég sofna en svo verður herbergið of kalt og gerir mig veikan. Eða það er að minnsta kosti mín kenning.
Annað að frétta er að á mánudag klessti lögregluþyrla með fimm innanborðs á þak í miðjum bæ einhversstaðar í Japan, brotlenti og sprakk í loft upp. Voru með myndir af brennandi flakinu og sprengingu í sjónvarpsfréttunum. Ég er kannski bara að tyggja ofan í ykkur fréttir sem þið hafið nú þegar heyrt.
Að lokum langar mig að biðja alla að forðast japönsku kvikmyndina Casshern eins og heitan eldinn. Hún kann að vera dýrasta kvikmynd sem japanir hafa framleitt og flott er hún en ég fæ fyrir enga muni séð hvaða snillingi datt í hug að þessi þvæla væri áhorfanleg.