GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

föstudagur, maí 13, 2005

Returner

Jæja, er kominn með staðfest flug heim og mun samkvæmt áætlun lenda 1. júní í Keflavík klukkan 22:40 eftir 20 klukkustunda ferðalag (með löngu stoppi í London).

Ferðast nú eitthvað eftir prófin, til Kobe í það minnsta og svo verð ég í nokkra daga í Tokyo fyrir flugið sem gefur mér tækifæri á að kíkja á World Expo sem er rétt fyrir utan borgina. Planið er að troða mér upp á Ester og/eða Röggu, skvísur sem ég þekki í Tokyo, því þær voru svo óskaplega góðar að bjóða mér upp á gistingu.

Ég er handviss um að ég sé búinn að gera nágranna mína gráhærða núna með stanslausum hósta dag sem nóttu því svona nokkuð heyrist alveg ágætlega á milli íbúða. Ég er nú eitthvað að skána en alveg löturhægt.

Eins og sumir kunna að hafa tekið eftir er gamla kommentakerfið officially dautt. Með öllu glatað því miður. Þeir sem eru hafa ef til vill verið að lesa gamlar færslur í fyrsta skiptið undanfarið megið vita að ég er ekki svona óvinsæll ^_^;