Sumar 2005
Þá er maður kominn aftur á heimaslóðir, fluttur inn í nýja íbúð og byrjaður að vinna.
Leigi núna út á stúdentagörðunum, nánar tiltekið Skerjagarði. Merkilegt nokk er ég kominn með vinnu í sama húsi en helmingur hússins er hótel á sumrin. Hótelið heitir Hótel Park og vinn ég þar í móttökunni á næturna. Hafði reyndar ekki hugmynd um að ég yrði að vinna í sama húsi og ég væri að flytja inn í þegar ég sótti um starfið.
Svefn hefur verið nokkuð erfiður hjá mér síðan ég kom heim. Fyrst fékk ég að sofa inni í gamla herberginu mínu í Þingholtsstrætinu þar sem Kristín systir var svo góð að leyfa mér það, en þar eru hvít gluggatjöld. Þar sem ég er mjög viðkvæmur fyrir svona ljósi vaknaði ég yfirleitt fyrir allar aldir þegar sólin tók að skína snemma á morgnana. Ekki skánaði ástandið þegar ég flutti svo í íbúðina en hún er gluggatjaldalaus og ekki lítið mál að redda sér brautagluggatjöldum hérna greinilega. Það er því nokkuð augljóst að sólbjartar sumarnætur eru ekki í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana.
Svefngríman sem ég fékk um borð hjá British Airways hefur reynst ómetanleg við þessar erfiðu aðstæður þó reyndar vakni ég alltaf með för um allt andlit eftir hana og líti út fyrir að hafa lent í einhverjum ryskingum kvöldið áður.
Smelli hérna inn laufléttum house smelli í tilefni sumarsins:Gamla kommentakerfið er risið upp frá dauðum. Öll gömlu kommentin eru inni, húrra! En til að byrja með verður tvöfalt kommentakerfi þangað til færlsurnar með haloscan kerfinu eru dottnar út, bara passið að nota fyrri kommentalinkinn héðan í frá.
Ég veit ekkert hvað ég gerði við sim kortið mitt gamla en þangað til ég finn það (eða ekki) og kaupi mér síma þá er ég með annað númer og síma í láni frá Bjögga. Tímabundið gemsanúmer hjá mér er því 662-0242 og heimasími (ætti að verða tengdur í dag) er 590-4046, svo þið skvísur þarna úti sem hafið lesið bloggið mitt og alltaf langað að komast í samband við mig getið loksins gert það núna.

<< Home