2005 A.D.
Síðan ég hef komið heim má lýsa samskiptum mínum við fólk á þessa leið:
"Hæææ ka segirru gott, var ekki rosa gaman í Japan?"
"Jú það var mjö.."
"Floooooott, gott að heyra."
Svo spyr fólk mig yfirleitt um einhverja japanska stereótýpu sem það sér alltaf í kvikmyndum eða eitthvað svona myth sem hefur myndast (skiljanlega) hjá vestrænu fólki. Yfirleitt verð ég að svara því neikvætt og mér hefur sýnst á mörgu fólki að það vilji eiginlega ekki að þessi ímynd sem það hefur sé brotin niður. Horfir á mig með vantrú og vonbrigðum þegar ég segi þeim að flest íbúðarhús í Japan séu mjög ljót, að flestur algengur sér japanskur matur sé frekar vondur og subbulegur (katsu, uuuuugh) eða annað þvíumlíkt og finnst mér stundum eins og það haldi að ég hafi nú bara ekki kynnt mér þessi mál alveg til hlýtar. Þetta á þó alls ekki alltaf við og ef til vill einhver ímyndun af minni hálfu þó mér finnist ég sjá þessi viðbrögð frekar oft.
Japan er sterkt í ímyndunaraflinu hjá vesturlandabúum og halda margir að allir þar búi í viðarhúsum með rennihurðum með zen görðum fyrir utan og borði sushi í öll mál. Ég fór reyndar í áfanga í Kansai Gaidai sem fjallaði um það hvernig vesturlandabúi eins og ég sjálfur gæti túlkað Japan fyrir löndum mínum því óhjákvæmilega yrði kallað á mig til að útskýra þetta framandi land og þjóð fyrir fólki sem þyrstir í fróðleik um fjarlæg lönd. Hann var mjög fróðlegur og tókst að einvherju leyti að brjóta niður stereótýpur sem maður kann að hafa um Japan og reyna frekar að sjá hvað sé líkt með okkar menningu frekar en að sjá hvað er öðruvísi, þó auðvitað þykir manni áhugaverðast að heyra um muninn en ekki um það sem við eigum sameiginlegt.Einnig var farið mikið í seinni heimsstyrjöldina og þá sérstaklega í samskipti Japans og Bandaríkjanna og stríðsáróðri úr báðum áttum. Mér finnst nú alveg merkilegt hvað lítið er farið í seinni heimsstyrjöldina í sögu í skólum á Íslandi og á það bæði við um grunnskóla og menntaskóla, og þá sérstaklega Japan því ég minnist þess ekki það sé talað um það einu orði fyrir utan Hiroshima og Nagasaki og Pearl Harbour. Ég var því nokkuð hissa að heyra í fyrsta skipti um styrjöldina um Okinawa þar sem yfir 250.000 Japanir létu lífið og einnig um umfang eldsprenginga Bandaríkjamanna á Japan sem brenndi næstum 69 borgir til grunna og drápu að minnsta kosti einu sinni yfir 100.000 manns á einu kvöldi og skeytti þar engu um hvort um hernaðarleg skotmörk var að ræða eða ekki. Ekki nóg með það heldur voru þeir algjörlega crushed áður en kjarnorkusprengjunum var varpað og búnir að gefast upp, en Bandaríkin voru ekki að taka það gilt því Japan vildi ekki gefast upp skilyrðislaust vegna þess að þeir voru hræddir um að keisarinn yrði tekinn af lífi.
Fengum líka að sjá kannanir hjá fólki í Bandaríkjunum sem voru teknar um þetta leyti og næstu 10 ár á eftir í bandaríkjunum og þar var meirihluti fólks sem fannst að Bandaríkin hefðu átt að varpa fleiri kjarnorkusprengjum á Japan og önnur þar sem einnig meirihluti fólks var tilbúið að styðja "total extermination" á Japönum í seinni heimsstyrjöldinni. Þetta hefði aldrei verið hægt með Þjóðverja enda voru þeir hvítir og alltaf álitnir flestir vera "fórnarlömb" nasista. Allur áróður gegn Japan miðaði líka við að gera Japani sub-human í augum almennings og er líklega ein aðalástæðan fyrir þessum hugsunargangi á þessum tíma.

<< Home